Ólafía Þórunn Kristinsdóttir endaði í 67. sæti á Swinging Skirts mótinu sem fram fór í Taívan. Ólafía bætti sig verulega á lokakeppnisdeginum en hún lék á +12 samtals (76-77-77-70) eða 300 höggum.
Fyrir árangurinn fékk Ólafía Þórunn rúmlega 500 þúsund kr.
Næst keppir Ólafía í Malasíu. Sime Darby mótið fer fram í Kuala Lumpur þar sem leiknar verða 72 holur. Fyrsti keppnisdagur mótsins er fimmtudagurinn 25. okt.