Ólafía Þórunn Kristinsdóttir/ Gabe Roux
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti frábæran lokakafla á Pure Silk mótinu sem fram fór við erfiðar aðstæður á Bahamas. Ólafía lék fyrsta hringinn á 77 höggum eða +4 og um tíma var hún á +8 og virtist vera úr leik á öðrum keppnisdeginum. Íþróttamaður ársins 2017 sýndi allar sínar bestu hliðar á síðustu 25 holunum sem hún lék á -10 samtals.

Ólafía Þórunn lék eins og áður segir við erfiðar aðstæður. Keppni var frestað í rúman sólarhring þar sem að vindurinn fór vel yfir 20 m/s. Vegna aðstæðna var brugðið á það ráð að fella niður eina umferð og var mótið því 54 holur.

Brittany Lincicome frá Bandaríkjunum sigraði á þessu móti og varði hún titilinn frá því í fyrra.Lincicome lék á -12 samtals og vann með tveggja högga mun. Hún fékk rúmlega 21 milljón kr. í verðlaunafé en Lincicome fékk tvo fugla í röð á lokaholunum sem tryggðu henni sigurinn. Hún vann í fyrra eftir bráðabana gegn Lexi Thompson. Wei-Ling Hsu frá Taívan, sem er 23 ára gömul, var á -10 og varð í öðru sæti.

Ólafía Þórunn endaði í 26. sæti á -1 og fékk hún rúmlega 1,2 milljón kr. í verðlaunafé. Eins og áður segir var útlitið frekar dökkt um tíma hjá Ólafíu þegar hún var á +8 eftir 29 holur.

Staðan:

Í fyrra komst Ólafía Þórunn í gegnum niðurskurðinn á sínu fyrsta móti og endaði hún í 69. sæti á -5 samtals þar sem hún lék á 287 höggum (71-68-77-71) en par Ocean vallarins á Paradise Island er 73 högg.

Ólafía Þórunn mætir til leiks með nýjan aðstoðarmann eða kylfubera. Sá heitir Gary Wildman og hefur m.a. starfað fyrir Emily Kristin Petersen og Charley Hull. Hann býr yfir mikilli reynslu en hann mun starfa með Ólafíu Þórunni á nokkrum mótum í upphafi tímabilsins áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.

Flestir af bestu kylfingum heims eru á meðal keppenda. Þar má nefna Shanshan Feng frá Kína sem er efst á heimslistanum. Hún varð í þriðja sæti á síðustu Ólympíuleikum en þetta er í fyrsta sinn sem hún keppir á Pure Silk mótinu á Bahamas. Feng er ein af fjórum keppendum á þessu móti sem eru á topp 10 listanum á heimslistanum. Hinar eru (3.) So Yeon Ryu, (4.) Lexi Thompson, (5) In-Kyung Kim og (8) Ariya Jutanugarn.

Ryu og Kim sigruðu báðar á risamóti á síðasta tímabili. Thompson var nálægt því að sigra á Pure Silk mótinu í fyrra, en hún tapaði í bráðabana gegn Brittany Lincicome.

Eins og áður segir á Brittany Lincicome titil að verja og hún er að sjálfsögðu mætt til leiks á Bahamas.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ