Ólafía Þórunn Kristinsdóttir undirbýr sig nú fyrir næstu keppnistörn á LPGA mótaröðinni, sterkustu mótaröð heims. GR-ingurinn og íþróttamaður ársins 2017, keppir á þremur mótum í röð í mars.
Fyrsta mótið af þessum þremur er Bank of Hope Founders Cup í Phoenix en Ólafía lék á því móti í fyrra og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Sömu sögu er að segja af Kia Classic mótinu sem fram fer í Carlsbad. Í lok mars keppir Ólafía á ANA Inspiration í Kaliforníu en það er jafnframt fyrsta risamótið af alls fimm á þessu tímabili.
Ólafía hefur nú þegar keppt á tveimur mótum á LPGA mótaröðinni. Hún endaði í 26. sæti á Pure Silk mótinu á Bahamas og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti í Ástralíu.
Mars 15-18 | Bank of Hope Founders Cup | Phoenix, AZ | |
Mars 22-25 | Kia Classic (Aviara) | Carlsbad, CA | |
Mars 29-Apr 1 | ANA Inspiration | Rancho Mirage, CA | *Major |