Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir eru báðar á meðal keppenda á LET Evrópumótaröðinni í þessari viku. Mótið hófst á fimmtudag og heitir það Lacoste Ladies Open de France. Keppt er á Golf du Medoc – Chateaux Course.
Keppnishringirnir eru alls fjórir.
Ólafía Þórunn er í 7. sæti fyrir lokahringinn á -6 samtals (71-68-68)
Valdís Þóra er úr leik en hún lék á -3 á öðrum keppnisdeginum eða 68 höggum og bætti sig um 10 högg frá fyrsta hringnum sem hún lék á 78 höggum eða +7. Valdís endaði í 103. sæti.
Valdís Þóra er í 22. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Mótið í Frakklandi verður 11. mótið hjá Valdísi Þóru á þessu keppnistímabiliu á mótaröðinni. Besti árangur hennar er 3. sæti.
Ólafía Þórunn er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni samhliða keppnisrétti hennar á LPGA mótaröðinni. Ólafía Þórunn er í 100. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Mótið í Frakklandi verður þriðja mótið á þessari leiktíð hjá Ólafíu á LET mótaröðinni.