07/08/2018. Ladies European Tour 2018. European Championships, PGA Centenary Course. Gleneagles, Scotland August 8 -12 2018. Olafia Kristinsdottir of Iceland during a practice round. Credit: Tristan Jones
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, lék á pari vallar á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Cambia LPGA mótinu sem fram fer í Portland í Bandaríkjunum.

Það dugði ekki til að komast i gegnum niðurskurðinn og var hún aðeins einu höggi frá því að komast áfram.

Georgia Hall frá Englandi er á -15 eftir 36 holur og er í efsta sæti með tveggja högga forskot.


Ólafía endaði í 64. sæti á CP mótinu sem lauk s.l. sunnudag í Kanada. Þar lék hún á +1 samtals.

Staðan er uppfærð hérna:

Ólafía hefur leikið á 20 mótum á tímabilinu. Eins og staðan er núna þá er Ólafía í sæti nr. 138 á peningalista LPGA mótaraðarinnar. Hún fór upp um eitt sæti frá því í síðustu viku.

Öll úrslit hjá Ólafíu má sjá hér:

Ólafía þarf að vera á meðal hundrað efstu í lok tímabilsins til að halda keppn­is­rétt­in­um á næsta tíma­bili. Verði hún í sæt­um 101-125 í lok tíma­bils­ins, fær hún tak­markaðan keppn­is­rétt á næsta tímabili.

Þá þarf hún samt sem áður að fara í gegn­um úr­töku­mót fyr­ir mótaröðina í des­em­ber, verði hún í sæt­um 101-125.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ