/

Deildu:

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/let.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf keppni í nótt á LOTTE meistaramótinu á LPGA mótaröðinni. Hershey er styrktaraðili mótsins og fer það fram á Ko Olina vellinum á Hawaii. Mótið hófst 11. apríl og verða leiknir fjórir keppnishringir eða 72 holur á fjórum dögum.

Ólafía lék á 81 höggi eða +9. Hún fékk 7 skolla (+1), einn skramba (+2) og einn fugl (-1).

Þetta er í 7. sinn sem mótið fer fram á þessum stað á LPGA mótaröðinni. Mótið er það sjötta á þessu tímabili hjá Ólafíu á sterkustu mótaröð heims í kvennaflokki. Ólafía hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum á þessu tímabili og besti árangur hennar er 24. sætið.

Í fyrra keppti Ólafía Þórunn á þessu móti á Hawaii. Hún lék á +7 samtals (76-75) og komst hún ekki í gegnum niðurskurðinn.

Nánar um mótið hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ