Ólafía Þórunn Kristinsdóttir tók þátt í góðgerðamóti sem fram fór á Bahamas og náði hún góðum árangri. Mótið heitir White Sands og fór það fram á Paradísareyju.
Leikið á Ocean vellinum en á þeim velli hóf Ólafía Þórunn LPGA ferilinn fyrir tveimur árum. GR-ingurinn lék á 66 höggum þar sem hún fékk alls sjö fugla og einn skolla.
Eins og áður segir var um góðgerðarmót að ræða og var einnig keppt í liðakeppni. Um 20 kylfingar af LPGA mótaröðinni tóku þátt. Má þar nefna stjörnur á borð við Lexi Thompson, Brittany Lincicome og Stacy Lewis.
Ólafía Þórunn er með takmarkaðan keppnisrétt á LPGA mótaröðinni á þessu tímabili. Hún hefur ekki leikið á atvinnumóti sem telur til stiga á þessu ári.