Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er úr leik LPGA móti sem fram fer í Phoenix í Bandaríkjunum. Mótið heitir Bank of Hope Founders Cup. Ólafía Þórunn lék á +6 samtals en hún lék á (76-74).
Ólafía Þórunn var sex höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Ólafía keppti á þessu móti í fyrra og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Bank of Hope Founders Cup var þriðja mótið á tímabilinu á LPGA mótaröðinni hjá Ólafíu. Hún endaði í 26. sæti á fyrsta mótinu á Bahamas og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti sem fram fór í Ástralíu.
Mótið í Phoenix sem hefst á fimmtudaginn er fyrsta mótið af alls þremur sem Ólafía keppir á í þessum mánuði.
Ólafía keppir á Kia Classic mótinu sem fram fer í Carlsbad 22.-25. mars, en þar keppti hún einnig í fyrra og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Í lok mars keppir Ólafía á ANA Inspiration í Kaliforníu en það er jafnframt fyrsta risamótið af alls fimm á þessu tímabili.
Mars 15-18 | Bank of Hope Founders Cup | Phoenix, AZ | |
Mars 22-25 | Kia Classic (Aviara) | Carlsbad, CA | |
Mars 29-Apr 1 | ANA Inspiration | Rancho Mirage, CA | *Major |