Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, hefur leik í dag Terre Blanche mótinu á LET Access atvinnumótaröðinni í Frakklandi. Mótið fer fram á glæsilegu golfvallasvæði rétt við hina þekktu kvikmyndaborg Cannes.
Ólafía sagði í gær að hún hefði undirbúið sig vel fyrir keppnistímabiiið í vetur með ýmsum hætti. Hún kom beint frá Bandaríkjunum til Frakklands en hún dvaldi við æfingar í Wake Forest háskólanum þar sem hún stundaði nám áður en hún fór í atvinnumennskuna. Aðstoðarmaður hennar í Frakklandi er Thomas Bojanowski, þýskur unnusti Ólafíu, en hann er grjótharður keppnismaður en hann var einn fremsti 800 metra hlaupari Þýskalands.
[pull_quote_right]„Mér líður vel og það er tilhlökkun hjá mér að takast á við þetta verkefni. Völlurinn er frábær og það verður gott að komast í keppnisgolf á ný eftir langt undirbúningstímabil,“ sagði Ólafía við golf.is í gær. [/pull_quote_right]
Ólafía hefur leik kl. 7.05 að íslenskum tíma eða 9.05 að frönskum tíma og slær hún fyrsta höggið á 10. teig í dag. Á morgun, föstudag, mun Ólafía hefja leik kl. 11.25 að íslenskum tíma og hefur hún þá leik á 1. teig.
Hægt er að fylgjast með gangi mála á vefsíðu LET Access og einnig hér fyrir neðan á Twittter síðu GSÍ.

