Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, valdi á dögunum 38 leikmenn í landsliðshóp GSÍ. Hópurinn kom saman í fyrstu æfingabúðir vetrarins dagana 17.-19. nóvember.
Það var frábært að hitta alla kylfingana á ný og hefja nýtt tímabil. Okkar fremstu kylfingar koma af krafti inn í tímabilið enda mörg spennandi verkefni sem bíða þeirra á næsta ári,” segir Ólafur Björn en æfingabúðir hjá landsliðshóp GSÍ fara fram einu sinni í mánuði yfir veturinn þar sem megináhersla er lögð á fjölbreytta fræðslu og keppnislíkar æfingar.
Fyrsta verkefni hópsins í æfingabúðunum fór fram hjá ÍSÍ í Laugardal föstudaginn 17. nóvember þar sem að foreldrum leikmanna var boðið að taka þátt í fyrirlestri. Þar fór Ólafur Björn yfir kynningu á starfseminni í bland við fræðslu um ýmislegt sem tengist afreksgolfi. Auk þess vann hópurinn saman að breytingum í mótahaldi fyrir afrekskylfinga.
Laugardaginn 18. nóvember fóru fram æfingar í aðstöðu GKG í Kórnum og í knattspyrnuhúsinu Fellinu í Mosfellsbæ. Sunnudaginn 19. nóvember æfði hópurinn í aðstöðu Keilis í Hraunkoti.
Í byrjun janúar á næsta ári fer landsliðshópurinn í æfingabækistöðvar GSÍ á Spáni – og er sú ferð hápunktur vetrardagskrárinnar. Það verður í annað sinn sem landsliðshópurinn fer í slíka ferð saman á Hacienda del Alamo. Ólafur segir að mikil tilhlökkun ríki í hópnum fyrir ferðina í janúar.
„Í byrjun þessa árs fórum við í fyrsta sinn með 48 manna hóp á æfingabækistöðvar íslenska landsliðsins á Spáni, Hacienda del Alamo, og munum við endurtaka leikinn í upphaf næsta árs. Það skiptir okkar kylfinga miklu máli að geta æft að vetrarlagi við frábærar aðstæður hvort sem það er í skipulagðri æfingaferð eða á eigin vegum. Við erum mjög ánægð að geta boðið okkar landsliðs- og atvinnukylfingum upp á þetta spennandi tækifæri og hlökkum mikið til ferðarinnar í janúar.” segir Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ.

Miðröð frá vinstri Auður Bergrún Snorradóttir Fjóla Margrét Viðarsdóttir Pamela Ósk Hjaltadóttir Berglind Erla Baldursdóttir Perla Sól Sigurbrandsdóttir Helga Signý Pálsdóttir Eva Fanney Matthíasdóttir Sara Kristinsdóttir
Neðsta röð frá vinstri Hjalti Kristján Hjaltason Skúli Gunnar ÁgústssonHjalti Jóhannsson Arnar Daði Svavarsson Snorri Hjaltason Gunnar Þór Heimisson og Bjarki Pétursson atvinnukylfingur sem tók þátt á æfingunni Fremstur á myndinni er Guðjón Frans Halldórsson








Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Nafn | Klúbbur |
Andrea Bergsdóttir | Hills GC |
Andrea Ýr Ásmundsdóttir | GA |
Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG |
Arnar Daði Svavarsson | GKG |
Aron Emil Gunnarsson | GOS |
Auður Bergrún Snorradóttir | GM |
Berglind Erla Baldursdóttir | GM |
Birgir Björn Magnússon | GK |
Böðvar Bragi Pálsson | GR |
Dagbjartur Sigurbrandsson | GR |
Daníel Ísak Steinarsson | GK |
Eva Fanney Matthíasdóttir | GKG |
Eva Kristinsdóttir | GM |
Fjóla Margrét Viðarsdóttir | GS |
Guðjón Frans Halldórsson | GKG |
Gunnar Þór Heimisson | GKG |
Gunnlaugur Árni Sveinsson | GKG |
Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS |
Helga Signý Pálsdóttir | GR |
Hjalti Jóhannsson | GK |
Hjalti Kristján Hjaltason | GM |
Hulda Clara Gestsdóttir | GKG |
Ingi Þór Ólafson | GM |
Jóhannes Guðmundsson | GR |
Kristján Þór Einarsson | GM |
Kristófer Karl Karlsson | GM |
Kristófer Orri Þórðarson | GKG |
Logi Sigurðsson | GS |
Loa D. Johannsson | GB |
Markús Marelsson | GK |
Pamela Ósk Hjaltadóttir | GM |
Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GR |
Saga Traustadóttir | GKG |
Sara Kristinsdóttir | GM |
Skúli Gunnar Ágústsson | GA |
Snorri Hjaltason | GKG |
Tómas Eiríksson Hjaltested | GR |
Veigar Heiðarsson | GA |