Fimmta mót tímabilsins á Öldungamótaröð LEK fer fram á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi í dag, 5. september.
Mótið átti að fara fram um síðustu helgi en því var frestað vegna veðurs.
Tæplega 120 keppendur eru skráðir til leiks.
Skor keppenda og rástíma er að finna hér:
Sjötta og jafnframt síðasta mót tímabilsins fer fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur 20. september.