Frá vinstri: Arnar Daði, Óliver Elí og Kristján Karl.
Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik 2024 fyrir keppendur á aldrinum 15-18 ára fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 16.-18. ágúst.

Í piltaflokki 15-16 ára sigraði Óliver Elí Björnsson, Golfklúbbnum Keili Hafnarfirði, en hann hafði betur í bráðabana um titilinn. Kristján Karl Guðjónsson, Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð annar og Arnar Daði Svavarsson, Golfklúbbi Kópavogs – og Garðabæjar varð þriðji.

1. Óliver Elí Björnsson, Golfklúbbnum Keili, 216 högg (+3) (72-74-70).
2. Kristján Karl Guðjónsson, Golfklúbbi Mosfellsbæjar 216 högg (+3) (73-69-74).
3. Arnar Daði Svavarsson, Golfklúbbi Kópavogs – og Garðabæjar 217 högg (+4) (70-72-75).

Smelltu hér fyrir úrslit:

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu á gsimyndir.is

Frá vinstri: Arnar Daði, Óliver Elí og Kristján Karl.

Alls voru 94 keppendur og komu þeir frá 14 klúbbum víðsvegar af landinu. Flestir voru frá GKG eða 21 alls, GM var með 16, GK 14 og GR 11.

Í piltaflokki komu keppendur frá 13 klúbbum og í stúlknaflokki voru keppendur frá 10 klúbbum. Tíu klúbbar voru með keppendur í bæði stúlkna – og piltaflokki.

Keppnisfyrirkomulagið var höggleikur án forgjafar.

Klúbbur StúlkurPiltarSamtalsHlutfall af heild
1GKGGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar10112122.3%
2GMGolfklúbbur Mosfellsbæjar881617.0%
3GKGolfklúbburinn Keilir2121414.9%
4GRGolfklúbbur Reykjavíkur741111.7%
5GAGolfklúbbur Akureyrar3699.6%
6GLGolfklúbburinn Leynir, Akranes0555.3%
7GVGolfklúbbur Vestmannaeyja1344.3%
8NKNesklúbburinn0444.3%
9GOSGolfklúbbur Selfoss1233.2%
10GSSGolfklúbbur Skagafjarðar1122.1%
11GSGolfklúbbur Suðurnesja1122.1%
12GHRGolfklúbbur Hellu0111.1%
13GHDGolfklúbburinn Hamar Dalvík0111.1%
14GSEGolfklúbburinn Setberg1011.1%

Smelltu hér fyrir stigalista ársins 2024:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ