Fyrsta mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ 2023, Leirumótið, fer fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 2.-4. júní 2023.
Mótið átti að vera annað mót tímabilsins en þar sem að fyrsta mótið sem fram átti að fara á Garðavelli á Akranesi 19.-21. maí var fellt niður þá er þetta mót það fyrsta í röðinni.
Golfklúbbur Suðurnesja er framkvæmdaraðili mótsins og gildir mótið til stiga á heimslista áhugakylfinga. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 þriðjudaginn 30. maí 2023. Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.
Opið er fyrir skráningu – smelltu hér.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ.
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl. 22:00 á miðvikudeginum fyrir mót (mögulega fyrr en kylfingar fá tilkynningu þess efnis í Golfboxi). Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út alla dagana frá kl. 8:00
Þátttökuréttur
Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144.
Þáttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.
Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki. Þó skulu að lágmarki 25% af hámarksfjölda keppenda fá þátttökurétt í hvorum flokki, að teknu tilliti til stærðar ráshópa. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.
Mótsgjald
Karlaflokkur.
Hvítir teigar 9.000 kr.
Kvennaflokkur.
Bláir teigar 9.000 kr.
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á þriðjudegi fyrir mót. ** Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun berst eftir að skráningarfresti lýkur.
Æfingahringur
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma í klúbbhúsinu. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald. Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.
1. verðlaun:
2. verðlaun:
3. verðlaun:
Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra.
Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 20 mínútum eftir að síðasti ráshópur lýkur leik.
Dómari: Halldór Einir Smárason, s: 893-3227
Mótsstjóri: Sverrir Auðunsson, s: 862 2573
Mótsstjórn: Örn Ævar Hjartarson, Sigurpáll Geir Sveinsson, Kristján Björgvinsson og Sara Guðmundsdóttir.
Úrdráttur:
Skor er fært inn rafrænt af leikmönnum og skulu kylfingar koma inn að loknum hring í skorherbergi og staðfesta skor. Ræst er af fyrsta teig eingöngu.