Golfsamband Íslands

PGA golfkennaranemar með opið hús fyrir fólk með líkamlega fötlun – 7. júní í GKG

#image_title

Opið hús verður í Íþróttamiðstöð GKG föstudaginn 7. júní þar sem að PGA golfkennaranemar og Golfsamtök fatlaðra á Íslandi standa að golfviðburði fyrir fólk með líkamlega fötlun.

Í tilkynningu frá skipuleggjendum kemur fram að viðburðurinn verði frá kl. 17-19, og eru áhugasamir hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til þess að prófa golfíþróttina – því golf er fyrir alla.

PGA golfkennaranemar taka vel á móti gestum og aðstoða alla sem koma.

Í golfhermum GKG verður boðið upp á kennslu þar sem að ýmsar þrautir og leikir í boði með mismunandi áherslum og útfærslum.

Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn

Exit mobile version