Piltalandslið Íslands keppir á Estonian G&CC í Eistlandi dagana 6.-10. júlí en um er að ræða keppni í næst efstu deild á Evrópumótinu.
Brynjar Eldon Geirsson er þjálfari liðsins í þessari ferð og mun sjúkraþjálfari fara með liðinu eins og hjá öðrum landsliðum Íslands. Keppnin í Eistlandi hefst 7. júlí og lokadagurinn er 10. júlí. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur – 36 holur alls. Fimm bestu skorin telja hjá hverju liði. Holukeppni tekur við af höggleiknum.
Eftirtaldir leikmenn skipa piltalandslið Íslands:
- Aron Ingi Hákonarson, GM
- Bjarni Þór Lúðvíksson, GR
- Björn Viktor Viktorsson, GL
- Böðvar Bragi Pálsson, GR
- Dagur Fannar Ólafsson, GKG
- Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér:
Alls eru 10 þjóðir sem taka þátt á EM piltalandsliða í 2. deild: Belgía, Eistland, Finnland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur, Pólland, Slóvakía og Slóvenína.
1. keppnisdagur
Gunnlaugur Árni Sveinsson, 76 högg (+4)
Böðvar Bragi Pálsson, 71 högg (-1)
Björn Viktor Viktorsson, 78 högg (+6)
Bjarni Þór Lúðvíksson, 77 högg (+5)
Aron Ingi Hákonarson, 81 högg (+9)
Dagur Fannar Ólafsson 82 högg (+10)