Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sigraði í karlaflokki á Egils Gull mótinu sem fram fór um helgina, mótið er hluti af Eimskipsmótaröðinni og það annað í röðinni í ár.
Ragnar Már spilaði í dag á 62 höggum eða 8 undir pari sem er nýtt og glæsilegt vallarmet á Strandarvelli. Eldra met átti Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum, 63 högg. Ragnar Már fékk níu fugla í dag eða fugl á 50% leikinna brauta, afar vel gert hjá þessum unga kylfingi. Þetta er annar sigur Ragnars Más á Eimskipsmótaröðinni í ár og er hann því með fullt hús stiga í karlaflokki.
Annar í dag varð Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili, Gísli átti einnig afar góðan dag á golfvellinum í dag en hann spilaði á 67 höggum eða á þremur höggum undir pari. Í þriðja sæti kom svo Heiðar Davíð Bragason úr Golfklúbbnum Hamri Dalvík hann lék í dag á 71 höggið eða einu yfir pari. Næsta mót Eimskipsmótaraðarinnar fer fram á Hamarsvelli Borgarnesi um aðra helgi.
1. sæti Ragnar Már Garðarsson GKG 73/71/62 = 206 -4
2. sæti Gísli Sveinbergsson GK 71772/67 = 210 par
3. sæti Heiðar Davíð Bragason GHD 69/72/71 = 212 +2
Ragnar Már Garðarsson, GKG
Gísli Sveinbergsson, GK
Heiðar Davíð Bragasson GHD