Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélagsins, Ragnhildur Krisitnsdóttir og Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR fagnaði sínum fyrsta stigameistaratitli á Eimskipsmótaröðinni í gær. GR-ingurinn endaði í öðru sæti á Securitasmótinu en hún veitti Sögu Traustadóttur og Nínu Björk Geirsdóttur úr GM harða keppni á lokahringnum á Grafarholtsvelli.

Þetta er í 28. sinn sem keppt er um stigameistaratitlinn í kvennaflokki á Íslandi. Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn sem Ragnhildur nær þessum árangri en nafna hennar Sigurðardóttir og liðsfélagi úr GR er sú sigursælasta frá upphafi. Ragnhildur Sigurðardóttir hefur oftast fagnaði þessum titli eða níu sinnum alls.

Árangur Ragnhildar á Eimskipsmótaröðinni 2016:
EgilsGullmótið: 4. sæti.
Símamótið: 4. sæti.
KPMGbikarinn, Íslandsmótið í holukeppni: 2. sæti.
Borgunarmótið, Hvaleyrarbikarinn: 5. sæti.
Íslandsmótið í golfi, Eimskipsmótaröðin: 6. sæti.
Securitasmótið: 2.-3. sæti.

Stigameistarar frá upphafi. 

Kvennaflokkur:
1989 Karen Sævarsdóttir (1)
1990 Ragnhildur Sigurðardóttir (1)
1991 Ragnhildur Sigurðardóttir (2)
1992 Karen Sævarsdóttir (2)
1993 Ólöf M. Jónsdóttir (1)
1994 Ólöf M. Jónsdóttir (2)
1995 Ólöf M. Jónsdóttir (3)
1996 Ólöf M. Jónsdóttir (4)
1997 Ólöf M. Jónsdóttir (5)
1998 Ólöf M. Jónsdóttir (6)
1999 Ragnhildur Sigurðardóttir (3)
2000 Herborg Arnarsdóttir (1)
2001 Ragnhildur Sigurðardóttir (4)
2002 Herborg Arnarsdóttir (2)
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir (5)
2004 Ragnhildur Sigurðardóttir (6)
2005 Ragnhildur Sigurðardóttir (7)
2006 Ragnhildur Sigurðardóttir (8)
2007 Nína Björk Geirsdóttir (1)
2008 Ragnhildur Sigurðardóttir (9)
2009 Signý Arnórsdóttir (1)
2010 Valdís Þóra Jónsdóttir (1)
2011 Signý Arnórsdóttir (2)
2012 Signý Arnórsdóttir (3)
2013 Signý Arnórsdóttir (4)
2014 Karen Guðnadóttir (1)
2015 Tinna Jóhannsdóttir (1)
2016 Ragnhildur Kristinsdóttir (1)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ