Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR og Henning Darri Þórðarson úr GK fengu glæsilega vinninga fyrir nákvæm innáhögg á lokahringum á Nýherjamótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í Vestmannaeyjum á sunnudaginn.
Ragnhildur og Henning fengu þráðlaus Bose heyrnartól í verðlaun sem ættu að nýtast vel við æfingarnar á næstu misserum.