Rannís hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:
· Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
· Fræðsluverkefna um gildi hreyfingar fyrir alla.
· Fjölbreytt verkefni sem hvetja ungt fólk sérstaklega til að taka þátt og hreyfa sig reglulega.
· Íþróttarannsókna.
· Verkefna samkvæmt 13. grein íþróttalaga.
Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.
Vakin er athygli á því að sami umsækjandi getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarflokki.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi fyrir kl. 15:00, mánudaginn 3. október 2022.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, netfang: andres.petursson@rannis.is, sími 699 2522.
ÍSÍ hvetur sambandsaðila sína og íþrótta- og ungmennafélög innan þeirra vébanda til að sækja um styrki úr sjóðnum til verkefna sem falla undir ofangreinda upptalningu.