Valdís Þóra og Marianne Skarpnord þrælhressar eftir sigurinn í Ástralíu.
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir var í nýju hlutverki á lokahringnum á Bonville mótinu sem er hluti af LET Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra komst ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu eftir fyrstu tvo keppnisdagana.

Valdís Þóra tók að sér það verkefni að vera Marianne Skarpnord frá Noregi til aðstoðar á lokahringnum.

Samnorræna verkefnið tókst gríðarlega vel því Skarpnord gerði sér lítið fyrir og sigraði á mótinu.

Leikið var í Ástralíu á Bonville mótinu en þaðan á Valdís Þóra góðar minningar. Hún náði sínum besta árangri á LET Evrópumótaröðinni á þessu móti fyrir ári síðan, þar sem hún endaði í þriðja sæti.

Það er jafnframt besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á atvinnumótaröð í efsta styrkleikaflokki.

Marianne Skarpnord með sigurverðlaunin ásamt vinum sínum, Camilla Lennarth, Linda Wessberg, Celine Borge, Valdis Jonsdottir, Karoline Lund og Tonje Daffinrud

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ