Golfklúbbur Sandgerðis sigraði í 3. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba í flokki +50 ára.
Keppt var á Selsvelli á Flúðum.
Alls tóku 7 golfklúbbar þátt.
Golfklúbburinn Jökull frá Ólafsvík varð í öðru sæti og Golfklúbburinn Hamar frá Dalvík í því þriðja.