Golfsamband Íslands

Sara María er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í stelpuflokki 13-14 ára

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í stelpuflokki 13-14 ára léku Sara María Guðmundsdóttir, GM, og Katla María Sigurbjörnsdóttir, GR, til úrslita. Þar hafði Sara María betur 4/3.

María Högnadóttir varð þriðja en hún sigraði Elvu Maríu Jónsdóttur, GK í leiknum um bronsverðlaunin.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri María Högnadóttir GSE Sara María Guðmundsdóttir GM og Katla María Sigurbjörnsdóttir GR


Smelltu hér fyrir úrslit leikja.

Exit mobile version