Í stefnu Golfsambands Íslands er lögð áhersla á að vakta og skrá sjálfboðavinnu.
Valið á sjálfboðaliða ársins er hluti af því að undirstrika hve mikilvægt sjálfboðaliðastarfið er fyrir hreyfinguna.
Golfsambandið óskar eftir tilnefningum um sjálfboðaliða ársins 2023.
Golfklúbbar eru hvattir til að senda tilnefningar á á netfangið soley@golf.is.
Skilafrestur er föstudagur 13. október 2023.
Sjálfboðaliðar ársins frá upphafi:
2014: Guðríður Ebba Pálsdóttir, GB
2015: Viktor Elvar Viktorsson, GL
2016: Guðmundur E. Lárusson. GA
2017: Már Sveinbjörnsson, GK
2018: Reynir Pétursson, GÍ
2019: Helgi Örn Viggósson, GR
2020: Þorkell Helgason, NK
2021: Árný Lilja Árnadóttir, GSS
2022: Karl Jóhansson, GR.