Site icon Golfsamband Íslands

Skráningu lýkur á miðvikudaginn á Áskorendamótaröð barna og unglinga hjá Nesklúbbnum

Fyrsta mót tímabilsins á Áskorendamótaröð barna og unglinga fer fram hjá Nesklúbbnum 28. maí 2022. Skráningu lýkur miðvikudaginn 25. maí og er hægt að skrá sig með því að smella hér.

Leikfyrirkomulag mótaraðarinnar er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir ungra kylfinga. Þessi mótaröð er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.

Helstu atriði sem lagt verður upp með:

● Ræst verður út frá kl. 8:00

● Kylfuberar eru leyfðir, Sjá almennar reglur um kylfubera.

● Höggleiks afbrigði: eftir 9 högg er skylda að taka upp og skrifa 10 högg.

● Fallreitur skal vera flatarmegin þegar slegið er yfir vítasvæði.

● Ef bolti týnist er lausnin eins og um vítasvæði væri að ræða. Eitt högg í víti þar sem boltinn fór inn í runna eða þ.h. og leikið áfram.

● Mótið er ekki stigamót

● Þeim kylfingum sem kjósa að leika til forgjafar er heimilt að flytja sig upp um flokk.

● Þeir kylfingar sem leika í flokki 10 ára og yngri leika ekki til forgjafar.

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum bæði hjá stelpum og strákum:

● 10 ára og yngri – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – gull teigar

● 12 ára og yngri – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

● 13 og 14 ára – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

● 15-18 ára – 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar – rauðir teigar

Ræst verður út í eftirfarandi röð:

Drengir 15-18 ára
Stúlkur 15-18 ára
Drengir 13-14 ára
Stúlkur 13-14 ára
Drengir 12 ára og yngri
Stúlkur 12 ára og yngri
Drengir 10 ára og yngri
Stúlkur 10 ára og yngri

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl.18:00 á miðvikudaginn fyrir mótið, þann 25. maí. Afskráning skal berast eigi síðar en kl. 12. föstudaginn 27. maí í síma 561-1930 eða á netfang Nesklúbbsins, nkgolf@nkgolf.is

Þátttökugjald er 2.000,- kr.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða kynntir fyrir mótið en ræst er út frá kl. 8:00 (eða öðrum tíma sem mótsstjórn kynnir) á mótsdegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tölvupósti og með mótinu í GolfBox.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innfalinn í mótsgjaldi en keppnisvöllurinn verður opinn fyrir æfingahring fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi áður en mótið hefst. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til þess að panta rástíma. Athugið að greiða þarf þátttökugjald áður en æfingahringur er leikinn.

Verðlaun og verðlaunaafhending

Allir keppendur mótsins fá viðurkenningarskjal að leik loknum en einnig verða aukaverðlaun veitt fyrir 1. – 3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda. Verðlaunaafhending fer fram um leið og leik lýkur í hverjum flokki.

Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin á Nesið og hllökkum til að sjá ykkur!

Nesklúbburinn


Exit mobile version