Golfsamband Íslands

Skúli Gunnar og Markús eru komnir áfram í 32-manna úrslit á R&A Amateur 18 ára og yngri

Skúli Gunnar Ágústsson, GK og Markús Marelsson, GK eru komnir áfram í 32 manna úrslit á R&A Amateur mótinu sem er fyrir keppendur 18 ára og yngri. Á þessu móti keppa sterkustu áhugakylfingar heims og á mótið sér langa sögu.

Skúli Gunnar sigraði á 19. holu í bráðabana í viðureign sinni gegn Jorge Siyuan Hao frá Spáni í 64-manna úrslitum í miklum spennuleik. Skúli Gunnar keppir gegn Svíanum Edwin Sjödin í 32-manna úrslitum fimmtudaginn 15. ágúst.

Markús lék gegn Skotanum Robby Turnbull í 64 manna úrslitum og sá leikur fór einnig í bráðabana þar sem að Markús tryggði sér sigur á 1. holu bráðbanans eða 19. holunni. Albin Ivarsson frá Svíþjóð verður mótherji hans í 32-manna úrslitum fimmtudaginn 15. ágúst.

Smelltu hér fyrir stöðunan í holukeppni pilta:

Alls taka 288 keppendur þátt á þessu móti, 144 í stúlknaflokki og 144 í piltaflokki.

Leikið er á tveimur völlum við borgina Leeds á Englandi.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur – og komast 64 efstu í holukeppnina sem tekur við eftir höggleikskeppnina.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, keppti í stúlknaflokki en komst ekki áfram eftir höggleikinn og Veigar Heiðarsson, GA komst í 64 manna úrslit en féll þar úr leik.

Smelltu hér fyrir stöðuna í holukeppni stúlkna:

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu í piltaflokki:

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu í stúlknaflokki:

2. keppnisdagur:

Skúli Gunnar, Veigar og Markús komast áfram í 64 manna úrslitin. Veigar og Skúli Gunnar léku hringina tvo á pari vallar samtals., Veigar á (72-70) og Skúli Gunnar á (70-72). Markús lék á 1 höggi yfir pari samtals (70-73). Þeir eru allir á meðal 15 efstu þegar þetta er skrifað en 64 efstu komast áfram í holukeppnina.

Perla Sól lék hringina tvo á +11 samtals (80-75) og var hún í 91. sæti þegar þetta er skrifað og var hún 3-4 höggum frá því að komast inn í 64 manna úrslitin.



1. keppnisdagur:

Skúli Gunnar og Markús eru jafnir í 5.-12. sæti á einu höggi undir pari vallar. Besta skorið er -3. Veigar er á +1 og er hann í 19.-25. sæti. Perla Sól lék á +8 á fyrsta hringnum og er hún 104. sæti og er hún þremur höggum frá 64. sætinu sem tryggir sæti í holukeppninni.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Frá vinstri Veigar Heiðarsson Skúli Gunnar Ágústsson og Markús Marelsson
Exit mobile version