Heilbrigðisráðherra hefur gefið út reglugerð þar sem að slakað hefur verið á reglum um sóttkví vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og munu reglurnar nú vera í aðalatriðum eftirfarandi:
- Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát.
- Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki er hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
- Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.
- Sóttkví verður áfram skylda fyrir þá sem eru útsettir fyrir smiti innan heimilis en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku.
- Börn á leik- og grunnskólaaldri verða undanþegin smitgát.
- Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
- Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
Aðrar reglur um samkomutakmarkanir gilda áfram og helstu atriði er varða íþróttahreyfinguna eru eftirfarandi:
- Almennar takmarkanir eru 10 manns
- Fjöldatakmarkanir á æfingum og í keppnum er 50 manns í hverju rými
- Áhorfendur eru bannaðir
Áfram eru allir hvattir til þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum og halda áfram að fylgja öllum reglum um samkomutakmarkanir og sóttvarnir.
Hér á vef heilbrigðisráðuneytisins má lesa nánar um breytingu á reglum um sóttkví