Ertu kylfingur með forgjöf 5.5 eða undir? (Karlmenn) eða 8,5 og undir (Konur) og ert 18 ára eða eldri?
Sálfræðideild HA, Íþróttafræðideild HR, PGA Ísland og Golfsamband Íslands leita að kylfingum til að taka þátt í spennandi rannsókn á áhrifum sálfræðilegra þátta á frammistöðu í golfi.
Þátttakendur munu svara spurningalistum og taka þátt í þremur stöðluðum frammistöðuprófum í golfhermi.
Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvort og þá hvernig sálfræðilegir þættir hafa áhrif á frammistöðu kylfinga.
Þátttakendur geta fengið niðurstöður sínar úr frammistöðuprófunum og er boðið upp á sérstakan kynningarfyrirlestur um niðurstöður rannsóknarinnar og öflugar sálfræðilegar aðferðir til að bæta leik sinn.
Við höfum nú þegar mælt 20 af bestu kylfingum landsins en nú vantar okkur fleiri kylfinga með forgjöf:
* Karlmenn undir 5.5 í forgjöf.
* Konur undir 8,5 í forgjöf.
Mælingar fara fram á Nesvöllum (inniaðstaða, Austurströnd 5) dagana 15.-17. nóvember og allir þátttakendur verða með í lukkudrætti þar sem tuttugu heppnir fá gjafabréf í golfbúð upp á 10.000 kr!
Ef þú hefur áhuga – smelltu á hnappinn hér fyrir neðan, og skráðu þig í skjalið – og tryggðu þér þátttöku en nú er síðasti séns.
Smelltu hér til að taka þátt!