Site icon Golfsamband Íslands

Stærsta úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ frá upphafi – GSÍ fær rúmar 36 milljónir kr.

Viðbragðshópur mynd.

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2022, en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema alls rúmlega 543 milljónum króna og er um að ræða hæstu úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi.

Um er að ræða úthlutun í tveimur hlutum, en á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í lok desember var úthlutað 220 m.kr. og á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í janúar rúmum 323 m.kr.

Áhrif heimsfaraldurs COVID-19 á alþjóðlegt afreksíþróttastarf voru áfram umtalsverð á árinu 2021 en engu síður var margt um að vera í afreksíþróttastarfi sérsambanda og vonir eru bundnar við að alþjóðlegar keppnir fari að mestu fram með hefðbundnu sniði á árinu 2022.

Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ hækkaði mikið á árunum 2016 til 2019 og var fyrir árið 2020 alls 400 milljónir króna. Framlag ríkisins vegna 2021 lækkaði um 8 milljónir króna og var 392 milljónir króna og áfram er framlag ríkisins sama upphæð, eða 392 m.kr. vegna verkefna ársins 2022. Afrekssjóður ÍSÍ er annars fjármagnaður með hlutdeild úr tekjum íþróttahreyfingarinnar frá Íslenskri Getspá samkvæmt ákvörðun Íþróttaþings ÍSÍ. 

Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust umsóknir frá 32 sérsamböndum. 30 sérsambönd hljóta að þessu sinni styrk vegna afreksíþróttastarfs og landsliðsverkefna og er um misháar upphæðir að ræða. 

Heildarkostnaður afreksíþróttastarfs hjá þeim sérsamböndum sem sóttu um til Afrekssjóðs ÍSÍ vegna ársins 2022 nema um 2.840 m.kr. og er stuðningur sjóðsins því að meðaltali rúmlega 19% af heildarkostnaði sérsambanda, sem er svipað og á síðasta ári, en þess má þó geta að árið 2016 var hlutfallið um 11%. Þó að úthlutun sjóðsins hækki lítillega á milli ára má sjá á gögnum sérsambanda að kostnaður við afreksíþróttastarfið heldur áfram að aukast og með þeim heimsfaraldri sem er í gangi hefur kostnaður við ferðalög og sóttvarnir aukist mjög mikið.

Sérsambönd eru flokkuð í þrjá afreksflokka, þ.e. A/Afrekssérsambönd, B/Alþjóðleg sérsambönd og C/Þróunarsérsambönd.

Við ákvörðun á styrkupphæðum til sérsambanda er fyrst horft til flokkunar þeirra í afreksflokka.

Eftir því hvaða flokki þau tilheyra er heimilt að veita þeim styrk vegna ákveðna málaflokka. Þannig hljóta sérsambönd grunnstyrk sem er mishár eftir flokki, styrk vegna þátttöku í HM/EM, styrk vegna hæfileikamótunar, vegna heilbrigðisteymis og vegna menntunar afreksþjálfara/landsliðsþjálfara.

Í flokki A og B sérsambanda eru síðan fleiri flokkar sem eru styrktir, s.s. vegna verkefna alþjóðlegra dómara, verkefna yngri liða/einstaklinga, vegna Ólympíuundirbúnings og vegna einstaklinga. Það sem greinir samt helst á milli sambanda varðandi upphæðir er umfang þess afreksstarfs sem á sér stað hjá sambandinu.

Þannig skila öll sérsambönd inn áætlun um verkefni ársins og fjölda þátttakenda og lengd verkefnis. Hvert mót fær ákveðinn stuðul eftir vægi mótsins samkvæmt skilgreiningu sérsambands.

Úr þessum gögnum verður til mismunandi stigafjöldi fyrir hvert sérsamband og fær sambandið úthlutað hluta af styrknum samkvæmt þeim stigafjölda sem það mælist með.

Áhersluþættir sjóðsins sjást í úthlutun til sérsambanda og hvernig einstaka þættir eru styrktir.

Gerð var ein breyting á flokkun sérsambanda, en Bogfimisamband Íslands var fært úr flokki C/Þróunar sérsambönd í flokk B/Alþjóðleg sérsambönd.

Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ lagði til við framkvæmdastjórn að heimila frávik við reglugerð þannig að við flokkun sérsambanda fyrir árið 2022 yrði horft til árangurs síðustu fimm ára, en ekki fjögurra eins og áður, þar sem heimsfaraldur hefur haft víðtæk áhrif á möguleika íþróttafólks og þar með sérsambanda til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi á síðustu tveimur árum. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti þá tillögu á fundi sínum og jafnframt að fara í ítarlega endurskoðun á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ á komandi vori.

Í reglugerð Afrekssjóðs ÍSÍ er fjallað um kröfur um afreksstefnur sérsambanda sem uppfylla viðmið ÍSÍ. Þannig er lögð áhersla á að öll sérsambönd móti sér stefnu í afreksíþróttum sem hljóti umfjöllun og samþykki á sérsambandsþingi. Mismunandi kröfur eru þó gerðar til sérsambanda eftir afreksflokkum þeirra.

Í þessum tölum er verið að tala um heildarúthlutun til viðkomandi sérsambands og er nánari útfærsla skilgreind í samningum sem gerðir verða við sérsambönd á næstunni.

Áherslur ÍSÍ varðandi afreksstyrki mótast af Afreksstefnu ÍSÍ þar sem segir:

„Meginhlutverk Afrekssjóðs ÍSÍ í uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhagslega og þar með íslenskt afreksíþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni. Forsenda styrkveitinga er að sérsambönd hafi markvissa og raunhæfa afreksstefnu, ásamt aðgerðaráætlun. Stuðningur sjóðsins felst í fjárframlögum vegna verkefna sem skulu vera fyrir fram skilgreind í aðgerðaráætlun viðkomandi sérsambands.”

Úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ til sérsambanda 2022

Sérsamband
A – flokkunUpphæð –
HSÍ – Handknattleikssamband Íslands86.600.000
FSÍ – Fimleikasamband Íslands62.700.000
KKÍ – Körfuknattleikssamband Íslands50.500.000
SKÍ – Skíðasamband Íslands42.550.000
FRÍ – Frjálsíþróttasamband Íslands36.700.000
GSÍ – Golfsamband Íslands36.350.000
SSÍ – Sundsamband Íslands35.600.000
ÍF – Íþróttasamband fatlaðra32.050.000
B – flokkun
KRA – Kraftlyftingasamband Íslands19.050.000
ÍHÍ – Íshokkísamband Íslands13.550.000
BLÍ – Blaksamband Íslands13.000.000
KLÍ – Keilusamband Íslands12.075.000
DSÍ – Dansíþróttasamband Íslands11.350.000
SKY – Skylmingasamband Íslands10.600.000
BSÍ – Badmintonsamband Íslands10.450.000
JSÍ – Judosamband Íslands10.200.000
BFSÍ – Bogfimisamband Íslands10.000.000
KAÍ – Karatesamband Íslands9.650.000
LH – Landssamband hestamannafélaga8.500.000
STÍ – Skotíþróttasamband Íslands8.250.000
C – flokkun
HRÍ – Hjólreiðasamband Íslands3.300.000
ÞRÍ – Þríþrautarsamband Íslands3.300.000
ÍSS – Skautasamband Íslands3.300.000
TSÍ – Tennissamband Íslands2.300.000
LSÍ – Lyftingasamband Íslands2.300.000
BTÍ – Borðtennissamband Íslands2.250.000
KÍ – Klifursamband Íslands1.875.000
MSÍ – Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands1.800.000
HNÍ – Hnefaleikasamband Íslands1.750.000
SÍL – Siglingasamband Íslands1.750.000
Alls 543.650.000

Exit mobile version