Laust er til umsóknar starf (starfshlutfall 100%) hjá Golfsambandi Íslands á mótasviði. Starfsmaðurinn mun starfa á skrifstofu sambandsins í samstarfi við framkvæmdastjóra, mótanefnd og munu helstu verkefni starfsmannsins verða á því sviði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. janúar 2023.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Umsjón með golfmótum GSÍ. Skipulagning, framkvæmd og frágangur í samstarfi við mótanefnd GSÍ og golfklúbba.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfiskröfur
- Þekking á golfíþróttinni.
- Reynsla og þekking af sambærilegum störfum.
- Góð tölvukunnátta.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki, sjálfstæði.
- Ökuréttindi.
Umsókn, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi þarf að berast til skrifstofu GSÍ eigi síðar en 15. október 2022 á netfangið soley@golf.is.
Umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.