– Margt áhugavert verður í boði á æfingasvæði GKG mánudaginn 16. maí
Stelpugolf hefur fest sig í sessi sem eitt af vorverkefnum PGA á Íslandi og Golfsambands Íslands. Markmiðið er að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í golfi og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Að sjálfsögðu geta þó fjölskyldumeðlimir af báðum kynjum komið á Stelpugolf og tekið þátt í skemmtilegum þrautum og leikjum – pútt, vipp, pitch og teighögg. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar á æfingasvæði GKG þar sem verða til staðar PGA golfkennarar sem leiðbeina. Einnig verður æfingahringur og þrautir í SNAG golfi..
Á undanförnum árum hafa mörg hundruð kvenna nýtt sér þetta tækifæri og í fyrra er talið að um 800 konur hafi mætt á svæðið og hvetjum við alla til að bjóða vinkonum, mömmum, ömmum systrum, frænkum, saumaklúbbum o.s.frv. með sér í golf. Það verða kylfur á staðnum og frí golfkennsla – það þarf bara að mæta! Segir Andrea.
Stelpugolf 2016 fer fram mánudaginn 16. maí og verður að venju á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Stelpugolfdagurinn er samvinnuverkefni PGA á Íslandi, GSÍ, GKG, ZO•ON, Icelandair Cargo, Íslandsbanka og Eimskips.
Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna á facebook/stelpugolf