Auglýsing

Stelpugolfdagurinn 2018 fer fram sunnudaginn 10. júní milli kl. 14:00 og 17:00 á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar líkt og undanfarin ár.

Stelpugolf var fyrst haldið árið 2014 af golfkennaranemum Golfkennaraskóla PGA og síðan þá hefur gífurlegur fjöldi lagt leið sína á völlinn og sótt sér kennslu.

PGA á Íslandi og Golfsamband Íslands halda uppteknum hætti en í ár mun tífaldur risameistari og einn sigursælasti kylfingur heims, Annika Sörenstam frá Svíþjóð, halda sýnikennslu í Stelpugolfi. 

„Við erum sérstaklega spennt fyrir Stelpugolfi í ár enda ekki oft sem Íslendingum gefst kostur á að fá golfkennslu frá einum allra besta kylfingi sögunnar. Við hvetjum alla áhugasama að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur,” segir Ólafur Björn Loftsson, framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.

Markmið viðburðarins er að auka þátttöku kvenkylfinga á öllum aldri og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Þó eru að sjálfsögðu allir af báðum kynjum velkomnir á Stelpugolf. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar á æfingasvæði GKG þar sem PGA golfkennarar verða til staðar að leiðbeina. Boðið verður upp á skemmtilegar þrautir og leiki ásamt kennslu í hinum ýmsu þáttum leiksins. Kylfur verða á staðnum fyrir þá sem vantar, það er engin nauðsyn að vera allan tímann og vel mögulegt að koma í styttri tíma sem og lengri.

Stelpugolfdagurinn er samvinnuverkefni PGA á Íslandi, GSÍ, GKG, Icelandair Cargo, ÍSAM og  Vodafone.

  • Stelpugolf er einn stærsti viðburður ársins í golfhreyfingunni.  Það má því búast við metfjölda sunnudaginn 10. júní í GKG – þar sem, Annika Sörenstam, ein stærsta íþróttastjarna allra tíma mun mæta á svæðið.
  • Viðburðurinn fer fram hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Hann er opinn öllum og ókeypis. Við biðlum til ykkar að aðstoða okkur við að láta fólk vita af Stelpugolfi í aðdraganda viðburðarins sem og að mæta á sunnudaginn og verða vitni að einstökum degi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ