Íslenska kvennalandsliðið í golfi keppir á HM kvenna sem fram fer á Karuizawa golfsvæðinu í Japan dagana 2.-6. september. Mótið er 72 holu höggleikur og taka alls 49 þjóðir þátt. Tvö bestu skorin hjá hverri þjóð telja í liðakeppninni á hverjum degi keppnisdagana fjóra og keppnin er einnig einstaklingskeppni.
Keppt er um Espirito Santo Trophy bikarinn en lið Suður Kórea er ríkjandi heimsmeistari. Leikið er á Karuizawa svæðinu (Iriyama Course) og (Oshitate Course), sem eru u.þ.b. 200 km frá Tokyo inni í miðju landi.
Hér má nálgast heimasíðu mótsins.
Keppendur: Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR Sunna Víðisdóttir GR Liðsstjóri: Haukur Örn Birgisson Þjálfari: Úlfar Jónsson Dagskrá mótsins: Espirito Santo Trophy (konur) Karuizawa (Iriyama Course and Oshitate Course) Æfingahringir : 1.- 2. september 2014 Keppnisdagar : 3.- 6. september 2014