Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafa báðar leikið 36 holur á Jabra Ladies Open sem hófst í Frakklandi á fimmtudag.
Guðrún Brá lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða -1. Hún lék á 79 höggum eða +8 á síðari hringnum og er samtals á +7 (70-79). Valdís Þóra lék á 78 höggum eða +7 á fyrsta hringnum. Hún bætti sig um 8 högg á öðrum hringnum þar sem hún lék á 70 höggum. Valdís er á +6 samtals (78-70).
Eins og staðan er núna þá miðast niðurskurðurinn við +3 og eru íslensku atvinnukylfingarnir því úr leik ef það reynist vera niðurstaðan.
Mótið er sameiginlegt verkefni hjá LET Evrópumótaröðinni og LET Access mótaröðinni. Mótið er einnig úrtökumót fyrir Evian risamótið sem fram fer í september á þessum velli.
Valdís Þóra hefur leik kl. 11:46 að íslenskum tíma á fimmtudaginn á 15. teig. og 7:06 á föstudaginn á 1. teig.
Guðrún Brá hefur leik kl. 12:19 á 15. teig á fyrsta keppnisdeginum og 7:39 á föstudaginn á 1. teig.
Ræst er út af tveimur teigum og er ræst út af 15. teig þar sem að 10. holan er mjög langt frá klúbbhúsinu.
Valdís Þóra segir á fésbókarsíðu sinni að keppnisvöllurinn sé blautur eftir rigningar undanfarna daga. Og það spáir úrkomu á næstu dögum á þessu svæði.