/

Deildu:

Krakkar í golfi. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi.

Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina.

Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 9. feb. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Slóð á skráningu í vorfjarnám þjálfaramenntunar ÍSÍ 2018, 1. og 2. stig:

https://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/

Ath: Vorfjarnám 3. stigs verður auglýst á næstu dögum.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-400 & 863-1399 eða á vidar@isi.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ