Tafir eru á ræsingu keppenda á Íslandsmótinu í golfi 2024 í dag vegna þoku á Hólmsvelli í Leiru.
Fyrsti ráshópurinn átti að hefja leik kl. 7:30 í morgun en ekki var hægt að hefja leik vegna þoku.
Fyrsti ráshópur fer af stað kl. 10 og verður seinkun á öllum rástímum dagsins.