Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, endaði í 23. sæti á Pro Golf atvinnumótaröðinni á The Tony Jacklin mótinu sem fram fór í Marokkó. Þórður lék á 69-69-72 og var samtals á -6. Besta skor mótsins var -12. Pro Golf mótaröðin er þýsk atvinnumótaöð sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Þetta var þriðja mótið á þessu tímabili hjá Þórði á Pro Golf mótaröðinni en hann hefur endað í 35., 13., og 23. sæti. Þórður keppir í þessari viku á fjórða móti tímabilsins og fer það einnig fram í Marokkó.