Henning Darri Þórðarson úr Keili náði bestum árangri þriggja íslenskra keppenda sem tóku þátt á Global Junior Golf mótinu sem fram fór á Spáni. Keppt var í þremur flokkum á þessu móti, einum atvinnukylfingaflokki og tveimur áhugakylfingaflokkum.
Henning endaði í þriðja sæti í U21 árs flokknum en hann lék hringina þrjá á +8 samtals. Björn Óskar Guðjónsson úr GM endaði í 13. sæti og Benedikt Sveinsson úr Keili endaði í 19. sæti.