Þrír íslenskir atvinnukylfingar eru á meðal keppenda á British Challenge atvinnumótinu sem fram fer á Belfry á Englandi.
Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, ChallengeTour, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu.
Andri Þór Björnsson (GR), Bjarki Pétursson (GKG) og Haraldur Franklín Björnsson (GR) hófu leik í gær.
Smelltu hér fyrir skor, stöðu og aðrar upplýsingar um mótið.