Málþing um mótahald fyrir afrekskylfinga á Íslandi fer fram föstudaginn 10. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, mun kynna tillögur að breyttum áherslum í mótahaldi afrekskylfinga á Íslandi.
Málþingið er opið öllum og er haldið í tilefni af þingi Golfsambands Íslands sem fram fer laugardaginn 11. nóvember.
Dagskráin hefst kl. 16:00 í sal sem heitir Gullteigur – en Grand Hótel er við Sigtún 28 í Reykjavík.
Að loknu erindi Ólafs verða pallborðsumræður sem Amanda Guðrún Bjarnadóttir, fréttamaður á RÚV stýrir.
Úlfar Jónsson, þjónustustjóri GKG, Steindór Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur, taka einnig þátt í pallborðsumræðunum.
Golfsamband Íslands hvetur alla sem hafa áhuga á þessum málaflokki að mæta og taka þátt í umræðunni. Léttar veitingar í boði.
16:00-16:05 | Málþingið opnað |
16:05-16:30 | Móthald fyrir afrekskylfinga á Íslandi – Ólafur Björn Loftsson |
16:30 – 17:00 | Pallborðsumræður |