Matilda Castren frá Finnlandi og Ainhoa Olarra frá Spáni fóru báðar holu í höggi í gær á sömu holunni, þeirri 4. á Urriðavelli. Þær eru báðar að keppa með sínum landsliðum á Evrópumóti áhugamanna í kvennaflokki sem fer fram í fyrsta sinn á Íslandi.
Finnar og Spánverjar áttust við í gær í A-riðli þar sem Spánverjar höfðu betur. Ainhoa Olarra var fyrri til að slá draumahöggið í fjórmenningsleiknum sem fram fór fyrr um daginn en þá lék hún gegn Castren en þetta högg dugði að sjálfsögðu til sigurs á holunni. Síðar um daginn sló Castren draumhöggið á 4. braut sem var 130 metra löng á þessum degi þar sem hún lék gegn Ainhoa Olarra Mujika frá Spáni í tvímenningsleik.
Hér fyrir neðan eru allar helstu upplýsingar um gang mála á EM.
Staðan í B-riðli (þar sem Ísland leikur).
elatc2016.co / Heimasíða mótsins.
Spánn, Þýskaland, England og Sviss eiga möguleika á EM titlinum
Naumt tap gegn Frökkum og Ísland leikur um sæti 13.-16. á EM
Ísland leikur í B-riðli um sæti 9-16 á EM kvenna á Urriðavelli
Dagur 1: Myndir/Photos dagur 1 #elatc2016
Dagur 1: Myndasyrpa (1): EM kvenna á Urriðavelli #elatc2016
Dagur 1: Okkar sveit þarf að gera betur / mbl.is
Dagur 1: Noregur með gríðarlegt forskot á EM kvennalandsliða:
Úlfar með hófstilltar væntingar fyrir EM
Evrópumót kvennalandsliða sett með formlegum hætti í kvöld
Gríðarlega sterkir leikmenn á EM kvenna á Urriðavelli