/

Deildu:

Símamótið 2016
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Auglýsing

– EM kvenna fer fram á Urriðavelli 4. -9. júlí

Evrópumót kvennalandsliða í golfi verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ dagana 4.-9. júlí. Þetta verður stærsta alþjóðlega golfmót sem haldið hefur verið á Íslandi fram til þessa. Á mótinu munu keppa fremstu áhugakylfingar kvenna í Evrópu.

Frakkar hafa titil að verja á þessu móti en Frakkar hafa fagnað Evrópumeistaratitlinum í undanförnum tveimur keppnum.

Um tuttugu þjóðir senda lið til keppni og verða keppendur um 120 alls. Sex kylfingar skipa hvert lið.

Síðast fór EM kvenna fram í Helsingør í Danmörku. Íslenska sveitin endaði í 19. sæti. Sunna Víðisdóttir úr GR endaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni í Danmörku. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni endaði í 11. sæti árið 2009 og er það besti árangur Íslendings í einstaklingskeppninni á EM eftir því sem best er vitað.

Keppnisfyrirkomulagið á EM er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur fyrstu tvo keppnisdagana og telja fimm bestu skor af alls sex í hverri umferð. Þjóðunum er að því loknu skipt upp í A, B og C riðil þar sem leikin er holukeppni. Í A-riðli leika þjóðirnar sem enduðu í 1.-8. sæti í höggleiknum, í B-riðli leika þjóðirnar í sætum 9.-16. og í C-riðli leika þjóðirnar sem eru þar fyrir neðan.

Úlfar Jónsson.
Úlfar Jónsson.

Einn kylfingur tryggði sér öruggt sæti í liðinu með því að sigra á úrtökumótinu sem haldið var fyrir kvennaliðið líkt og hjá karlaliðinu. Þar voru leiknar 72 holur á Urriðavelli og sú sem var á besta skorinu tryggði sér sæti í A-landsliðinu.

„Ég er með hófstilltar væntingar fyrir þetta mót. Það væri frábært að komast í hóp 8 efstu í A-riðli en þá þyrfti allt að ganga upp hjá okkur. Við vorum aðeins tveimur höggum frá því að komast í A-riðilinn fyrir tveimur árum og það getur allt gerst á svona móti.“

Úlfar segir að margt sé áhugavert við Urriðavöll fyrir keppendur sem leika á allt öðrum teigum en þeir eru vanir á þessum frábæra velli. „Liðin keppa að mestu á 5.400 metra teigunum og völlurinn er því um 400 metrum lengri en þær eru vanar. Það er því allt annað útsýni á þessum teigum fyrir keppendur, þeim þarf að líða vel og móta gott leikskipulag, sérstaklega hvað varðar teighöggin. Við höfum undirbúið okkur vel með því að leika mjög mikið í Oddinum að undanförnu, svo sjálfstraustið aukist og leikmenn verði öruggari með sig og leikskipulagið á vellinum,“ sagði Úlfar en þess ber að geta að atvinnukylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru ekki gjaldgengar í þessa keppni fyrir áhugakylfinga.

Eins og áður segir hafði Úlfar ekki valið liðið þegar viðtalið var tekið en það má fastlega búast við því að Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK verði lykilmaður í íslenska liðinu. Stúlknalandslið Íslands verður við keppni á EM á sama tíma og yngstu afrekskylfingar landsins verða því ekki í A-landsliðinu að þessu sinni.

„Ég geri ráð fyrir að Frakkar, Svíar, Þjóðverjar, Spánverjar og Ítalir verði í baráttunni um Evrópumeistaratitilinn. Veðrið verður vonandi frábært en ef við fáum íslenskt sumarveður, rok og rigningu, þá gæti það hentað vel fyrir þjóðir á borð við England, Skotland og vonandi okkur Íslendingana líka,“ sagði Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari.
Úrslit síðustu ára á EM kvenna:

  • 2015 Helsingør, Danmörk.
    Evrópumeistarar Frakkland – Ísland 19. sæti.
  • 2014 Ljubljana, Slóvenía.
    Evrópumeistarar Frakkland – Ísland 16. sæti.
  • 2013 Fulford, England.
    Evrópumeistarar Spánn – Ísland 17. sæti.
  • 2011 Murhof, Austurríki.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland 16. sæti.
  • 2010 La Manga Club, Spánn.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland 17. sæti.
  • 2009 Bled, Slóvenía.
    Evrópumeistarar Þýskaland – Ísland 16. sæti.
  • 2008 Stenungsund, Svíþjóð.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland tók ekki þátt.
  • 2007 Castelconturbia, Ítalía.
    Evrópumeistarar Spánn – Ísland tók ekki þátt.
  • 2005 Karlstad, Svíþjóð.
    Evrópumeistarar Spánn – Ísland 15. sæti.
  • 2003 Frankfurter, Þýskaland.
    Evrópumeistarar Spánn – Ísland tók ekki þátt.
  • 2001 Golf de Meis, Spánn.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland 16. sæti.
  • 1999 St Germain, Frakkland.
    Evrópumeistarar England – Ísland tók ekki þátt
  • 1997 Nordcenter G&CC, Finnland.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland tók ekki þátt.
  • 1995 Milano, Ítalía.
    Evrópumeistarar Spánn – Ísland 17. sæti.
  • 1993 Royal Hague, Holland.
    Evrópumeistarar Svíþjóð – Ísland 16. sæti.Screen Shot 2016-06-30 at 3.13.29 PM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ