/

Deildu:

#image_title
Auglýsing

Unglingamót Keilis fer fram dagana 30.-31. júlí en mótið er hluti af Unglingamótaröð GSÍ.

Keppnisfyrirkomulag mótsins er höggleikur án forgjafar, 54 holur. Leiknir eru 2 hringir á þriðjudegi og einn á miðvikudegi.

Smelltu hér til fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Alls eru 79 keppendur, 29 í stúlknaflokki og 48 í piltaflokki. Keppendur koma frá 13 klúbbum víðsvegar af landinu. Flestir eru frá GKG eða 20 alls, GM er með 13 og GK 12.

Klúbbur Stúlkur Piltar Samtals
1GKG – Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar81220
2GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar8513
3GK – Golfklúbburinn Keilir Hafnarfjörður21113
4GA – Golfklúbbur Akureyrar369
5GR – Golfklúbbur Reykjavíkur 437
6GOS – Golfklúbbur Selfoss 112
7NK – Nesklúbburinn 033
8GS – Golfklúbbur Suðurnesja 112
9GL – Golfklúbburinn Leynir Akranes 022
10GSS – Golfklúbbur Skagafjarðar 101
11GSE – Golfklúbburinn Setberg 101
12GV – Golfklúbbur Vestmannaeyja 011
13GHD – Golfklúbburinn Hamar Dalvík 011

Mótið er hluti af Unglingastigamótaröð GSÍ. Leikið er samkvæmt reglugerð GSÍ um stigamót unglinga, almennum keppnisskilmálum GSÍ og almennum staðarreglum GSÍ, auk þessara viðbóta við keppnisskilmála og viðbóta við staðarreglur.

Flokkar – Keppt er í flokki stúlkna 15-18 ára og í flokki pilta 15-18 ára.

Verðlaun – Veitt verða verðlaun (gjafakort) fyrir 1. – 3. sæti í flokki stúlkna 15-18 ára og í flokki pilta 15-18 ára. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í flokki stúlkna 15-16 ára, stúlkna 17-18 ára, pilta 15-16 ára og pilta 17-18 ára. 

Lægsta heildarskor í stúlkna og piltaflokki fær boð á Hvaleyrarbikarinn sem fer fram dagana 9-11 ágúst n.k á Hvaleyrarvelli

Viðbótarstaðarreglur

​Reglugerð 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ