Veigar Heiðarsson, GA, varð stigameistari í flokki 14 ára og yngri í piltaflokki á Unglingamótaröð GSÍ 2020. Markús Marelsson, GK, varð annar og Skúli Gunnar Ágústsson, GA, varð þriðji.
Veigar tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á þremur þeirra og þar á meðal Íslandsmótinu í holukeppni. Hann varð einu sinni í þriðja sæti og einu sinni í fimmta sæti.