Böðvar Bragi Pálsson, GR, er stigameistari unglinga 2021 í flokki 17-18 ára. Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun.
Hann sigraði á þremur þeirra – og landaði báðum Íslandsmeistaratitlunum í þessum flokki, holukeppni og höggleik.
Björn Viktor Viktorsson, GL, varð annar á stigalistanum. Björn Viktor lék á öllum fimm mótunum og hann varð í 2. sæti á þremur þeirra.
Mikael Máni Sigurðsson, GA, varð þriðji á stigalistanum en hann sigraði á einu móti af alls fimm sem hann tók þátt í.
Alls tóku 27 keppendur þátt í mótum tímabilsins í flokki 17-18 ára pilta.