Golfsamband Íslands

Unglingamótaröð GSÍ 2021 – Böðvar Bragi stigameistari í flokki 17-18 ára

Böðvar Bragi Pálsson, GR, stigameistari í flokki 17-18 ára 2021. Mynd/seth@golf.is

Böðvar Bragi Pálsson, GR, er stigameistari unglinga 2021 í flokki 17-18 ára. Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun.

Hann sigraði á þremur þeirra – og landaði báðum Íslandsmeistaratitlunum í þessum flokki, holukeppni og höggleik.

Björn Viktor Viktorsson, GL, varð annar á stigalistanum. Björn Viktor lék á öllum fimm mótunum og hann varð í 2. sæti á þremur þeirra.

Mikael Máni Sigurðsson, GA, varð þriðji á stigalistanum en hann sigraði á einu móti af alls fimm sem hann tók þátt í.

Alls tóku 27 keppendur þátt í mótum tímabilsins í flokki 17-18 ára pilta.

<strong>Böðvar Bragi Pálsson GR Myndsethgolfis<strong>
<strong>Mikael Máni Sigurðsson GA Böðvar Bragi Pálsson GR og Björn Viktor Viktorsson GL Myndsethgolfis<strong>

Stigalisti 17-18 ára piltar:

Exit mobile version