Golfsamband Íslands

Unglingamótaröð GSÍ 2022 – Pamela Ósk Hjaltadóttir stigameistari í flokki 13-14 ára

Frá vinstri: Vala María Sturludóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Eva Fanney Matthíasdóttir. Mynd/Frosti

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, er stigameistari í flokki 13-14 ára stúlkna 2022 á unglingamótaröð GSÍ.

Pamela sigraði á fjórum mótum af alls fimm á tímabilinu og fagnaði Íslandsmeistaratitli í höggleik og holukeppni. Hún varð einu sinni í öðru sæti.

Vala María Sturludóttur, GL, varð önnur á stigalistanum. Hún var ávallt á meðal fimm efstu á mótum tímabilsins, þrívegis í öðru sæti og einu sinni í þriðja sæti.

Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG, varð þriðja á stigalistanum. Hún sigraði á einu móti og varð einu sinni í þriðja sæti.

Stigalistinn er í heild sinni hér:

Exit mobile version