Fjóla Margrét Viðarsdóttir er stigameistari unglinga 2021 í flokki 14 ára og yngri. Fjóla Margrét lék á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún sigraði á fjórum þeirra og varð einu sinni í öðru sæti. Hún sigraði á báðum Íslandsmótunum, í holukeppni og höggleik.
Eva Kristinsdóttir varð í öðru sæti á stigalistanum. Hún lék á öllum fimm mótum tímabilsins og hún sigraði á fyrsta móti tímabilsins. Eva varð tvívegis í öðru sæti og tvívegis í þriðja sæti.
Auður Bergrún Snorradóttir, GA, varð í þriðja sæti í þessum aldursflokki. Hún varð tvívegis í öðru sæti og tvívegis í fjórða sæti.
Alls tóku 32 keppendur þátt í þessum flokki á tímabilinu.