
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, er stigameistari 2024 á Unglingamótaröðinni í flokki 15-16 ára stúlkna. Alls eru 21 leikmaður á stigalistanum.
Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:
Bryndís Eva fékk 5.576 stig en hann tók þátt á 7 mótum á tímabilinu. Hún sigraði á tveimur mótum, varð í öðru sæti á þremur og einu sinni í þriðja sæti.
Pamela Ósk varð önnur með 5.101 stig. Hún tók þátt á 6 mótum á tímabilinu. Hún sigraði á fjórum mótum, varð fjórða á einu og í fimmta sæti á einu.
Eva Fanney varð þriðja með 3.270 stig. Hún tók þátt á 7 mótum á tímabilinu. Hún varð einu sinni í öðru sæti, og tvívegis í 3. sæti.
