Fyrsta mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ, SS-mótið, fer fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu dagana 28.-30. maí 2021.
Alls eru fimm mót á dagskrá í sumar eins og sjá má á veggspjaldinu hér fyrir neðan.
Þátttakendur skulu skrá sig í SS-mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 þriðjudaginn 25.maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ghr@ghr.is
Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur, 18 holur á dag. Í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Áætlaðir rástímar
Föstudagur 13:00 – 16:00 Athugið: Einungis flokkar 17-18 ára og 19-21 árs
Laugardagur 08:00 – 16:00
Sunnudagur 08:00 – 16:00
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori.
Rásröðun
Föstudag: 19-21 árs, 17-18 ára.
Laugardag: 19-21 árs, 17-18 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri.
Sunnudag: 15-16 ára,14 ára og yngri, 19-21 árs og 17-18 ára,
Skráning
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 þriðjudaginn 25.maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á ghr@ghr.is Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Æfingahringur
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.
Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending er haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Styrktaraðili er Sláturfélag Suðurlands