Golfsamband Íslands

Úrslit úr Nettómótinu hjá GKG á unglingamótaröðinni

Tæplega 160 keppendur tóku þátt á Nettómótinu sem fram fór á Leirdalsvelli dagana 9.-11. júní. Mótið telur til stiga á unglingamótaröð GSÍ og var Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar framkvæmdaraðili mótsins. Þetta er í þriðja sinn sem GKG heldur mót á þessari mótaröð í samstarfi við Nettó. Mótið gekk einstaklega vel enda veðrið frábært alla keppnisdaga. 

Heildarúrslit mótsins og skor má sjá hér

Tveir elstu keppnishóparnir hófu leik á fimmtudag og léku 54 holur. Sérstök keppni um Nettóbikarinn var leikin í elstu flokkunum, og sigruðu Logi Sigurðsson og Sara Kristinsdóttir en þau voru á lægsta skori stúlku og pilts í 54 holu höggleiknum.

Aðrir keppnishópar léku 36 holur á tveimur keppnisdögum, föstudag og laugardag. Einnig var Nettó Áskorendamótið leikið á föstudag, fréttir og úrslit er að finna hér.

Lokahóf var haldið fyrir keppendur þar sem boðið var upp á veitingar, veitt nándarverðlaun og dregið úr skorkortum. 

Marinó Már myndasmiður tók myndir sem hægt er að sjá hér.

Keppt var í fjórum aldursflokkum pilta og þremur hjá stúlkum og voru úrslitin eftirfarandi:

14 ára og yngri stúlkur

<strong>Frá vinstri Úlfar Vala Eva Fanney Pamela Ósk Ninna Stefanía<strong>

1. sæti: Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG (1. sæti eftir bráðabana). 
2.-4. sæti Vala María Sturludóttir, GL.
2.-4. sæti Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM.
2.-4. sæti Ninna Þórey Björnsdóttir, GR.

14 ára og yngri strákar

<strong>Frá vinstri Arnar Daði Snorri Gunnar Þór<strong>

1. sæti: Arnar Daði Svavarsson, GKG.
2. sæti: Snorri Hjaltason, GKG.
3. sæti: Gunnar Þór Heimisson, GKG.

15-16 ára stúlkur

<strong>Frá vinstri Heiða Rakel Perla Sól Fjóla Margrét Guðmundur Ágúst<strong>

1. sæti Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR
2. sæti Heiða Rakel Rafnsdóttir GM
3. sæti Fjóla Margrét Viðarsdóttir GS

15-16 ára drengir

<strong>Frá vinstri Veigar Markús Guðjón Frans<strong>

1. sæti: Markús Marelsson, GK.
2. sæti: Guðjón Frans Halldórsson, GKG.
3. sæti: Veigar Heiðarsson, GA.

17-18 ára stúlkur

<strong>Frá vinstri Katrín Sól Sara Berglind Erla<strong>

1. sæti: Sara Kristinsdóttir, GM.
2. sæti: Berglind Erla Baldursdóttir, GM.
3. sæti: Katrín Sól Davíðsdóttir, GM.

17-18 ára drengir

<strong>Frá vinstri Gunnlaugur Árni Jóhann Frank Heiðar Snær<strong>

1. sæti: Jóhann Frank Halldórsson, GR.
2. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG.
3. sæti: Heiðar Snær Bjarnason, GOS.

19-21 árs drengir

<strong>Frá vinstri Tómas Logi Breki<strong>


1. sæti: Logi Sigurðsson, GS.
2. sæti: Tómas Eiríksson Hjaltested, GR.
3. sæti: Breki Gunnarsson Arndal, GKG.

Veitt voru nándarverðlaun og voru eftirfarandi næstu holu:

9. braut stúlkur: Katrín Embla Hlynsdóttir GOS 2,44 m

9. braut piltar: Sebastian Blær Ómarsson GR 2,38 m

11. braut stúlkur: Tinna Alexía Harðardóttir GK 4,34 m

11. braut piltar: Tristan Traustason GL 1,35 m

17. braut stúlkur: Ninna Þórey Björnsdóttir GR 2,29 m

17. braut piltar: Arnór Daði Rafnsson GM 28 cm

Við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna.

Exit mobile version